#

Vöktunarmælingar Geislavarna ríkisins 2004

Skoða fulla færslu

Titill: Vöktunarmælingar Geislavarna ríkisins 2004Vöktunarmælingar Geislavarna ríkisins 2004
Höfundur: Magnús Á. Sigurgeirsson 1963 ; Kjartan Guðnason 1964 ; Elísabet Dólinda Ólafsdóttir 1965 ; Sigurður Emil Pálsson 1955 ; Sigurdís Gunnarsdóttir
URI: http://hdl.handle.net/10802/2913
Útgefandi: Geislavarnir ríkisins
Útgáfa: 10.2005
Ritröð: GR ; 05:04
Efnisorð: Geislavarnir; Geislavirkni; Matvælaeftirlit; Loftmengun; Mengunarmælingar; Sjávarmengun
ISBN: 9979-9568-9-5
Tungumál: Íslenska
Tegund: Skýrsla
Útdráttur: Í skýrslunni eru teknar saman vöktunarmælingar Geislavarna ríkisins á geislavirku sesíni
(Cs-137) í umhverfinu og í matvælum árið 2004. Sesín-137 var mælt í eftirfarandi
sýnaflokkum:
• Andrúmslofti (svifryki)
• Regnvatni
• Kúamjólk (ferskri mjólk og mjólkurdufti)
• Lambakjöti
• Sjó
• Þangi
• Fiski
• Kjötvörum úr matvöruverslunum
Niðurstöður mælinga benda til að um litlar breytingar sé að ræða á styrk sesíns síðustu
árin. Í andrúmslofti er styrkur sesíns < 0,1 μBq/m3 og í úrkomu < 1 mBq/l.
Í mjólk mælist styrkur sesíns að jafnaði 1 Bq/kg og í mjólkurdufti 11 Bq/kg. Styrkur sesíns
í lambakjöti er mjög breytilegur yfir landið og spannar vítt bil, 2-52 Bq/kg.
Í sjó mælist styrkur sesíns 2,3-3,6 Bq/m3. Hæstur styrkur mælist jafnan í pólsjó fyrir
norðan og vestan land. Styrkur Tc-99 (teknetín-99) í sjósýnum teknum fyrir norðvestan
landið mælist á bilinu 0,04-0,1 Bq/m3. Í þangi mælist styrkur sesíns á bilinu 0,1-0,3 Bq/kg
og í fiski á bilinu 0,1-0,6 Bq/kg.
Í kjötafurðum frá matvöruverslunum mælist styrkur sesíns á bilinu 0,06-5,6 Bq/kg, hæstur
í gæsakjöti. Styrkur sesíns í íslenskum matvælum er í öllum tilvikum vel innan alþjóðlegra
viðmiðunarmarka í milliríkjaverslun, sem eru 1000 Bq/kg.
Geislamælar til rauntímavöktunar á heildar gammageislun eru starfræktir við fjórar
sjálfvirkar veðurstöðvar Veðurstofu Íslands, þ.e. á Bolungarvík, Raufarhöfn, Akurnesi og í
Reykjavík, auk þess sem um árabil hefur verið starfræktur slíkur mælir á Rjúpnahæð.
Styrkur geislunar er almennt lágur, eða 40-80 nSv/klst.
Niðurstöður vöktunarmælinga frá árunum 1989-2003 hafa verið gefnar út.


Skrár

Skrá Stærð Skráartegund Skoða
voktun_2004.pdf 6.557Mb PDF Skoða/Opna

Þetta verk birtist í eftirfarandi flokki:

Skoða fulla færslu

Leita


Fletta