#

Húsakönnun : Mæðragarðurinn og Tjörnin í Reykjavík - Bókhlöðustígur - Laufásvegur - Skálholtsstígur - Fríkirkjuvegur - Skothúsvegur - Tjarnargata - Vonarstræti - Lækjargata

Skoða fulla færslu

Titill: Húsakönnun : Mæðragarðurinn og Tjörnin í Reykjavík - Bókhlöðustígur - Laufásvegur - Skálholtsstígur - Fríkirkjuvegur - Skothúsvegur - Tjarnargata - Vonarstræti - LækjargataHúsakönnun : Mæðragarðurinn og Tjörnin í Reykjavík - Bókhlöðustígur - Laufásvegur - Skálholtsstígur - Fríkirkjuvegur - Skothúsvegur - Tjarnargata - Vonarstræti - Lækjargata
Höfundur: Páll V. Bjarnason 1946 ; Helga Maureen Gylfadóttir 1974 ; Borgarskipulag Reykjavíkur
URI: http://hdl.handle.net/10802/4865
Útgefandi: Árbæjarsafn
Útgáfa: 2004
Ritröð: Minjasafn Reykjavíkur., Skýrslur Minjasafns Reykjavíkur - Árbæjarsafns ; nr. 108Skýrslur Árbæjarsafns ; nr. 108
Efnisorð: Húsavernd; Húsfriðun; Byggingar; Reykjavík
Tungumál: Íslenska
Tengd vefsíðuslóð: http://www.minjasafnreykjavikur.is/skyrslur/skyrsla_108.pdf
Tegund: Bók
Gegnir ID: 991000851219706886
Athugasemdir: Unnið að beiðni Borgarskipulags Reykjavíkur vegna deiliskipulagsvinnuMyndefni: myndirHér fer á eftir könnun byggðar á svæðinu í kringum Mæðragarðinn og Tjörnina í Reykjavík og þau hús sem standa þar í nágrenninu. Húsin standa við Bókhlöðustíg, Laufásveg, Skálholtsstíg, Fríkirkjuveg, Tjarnargötu, Vonarstræti og Lækjargötu. Alls eru 23 byggingar á þessu svæði.

Húsakönnunin er unnin að beiðni Skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur í samræmi við skipulagslög vegna gerðar deiliskipulags á svæðinu. Þessir reitir eru innan þess svæðis sem varðveisluskrá Reykjavíkur nær til, en það er svæðið innan Hringbrautar/ Snorrabrautar.

Húsin á svæðinu eru frá ýmsum tímum, en elsta húsið á svæðinu var byggt árið 1896 og það yngsta á árunum 1988 – 1992. Ekki er um að ræða tæmandi sögulega úttekt á viðkomandi svæði, en þó er skoðað hvaða hús hafa verið byggð á svæðinu í gegnum árin og þau metin sem enn standa. Sú rannsókn er nauðsynleg til að átta sig á samhengi byggðarinnar og þróun svæðisins.

Við mat á varðveislugildi húsa hefur verið beitt svokallaðri SAVE-aðferð (Survey in Architectural Value in the Environment) sem gerð er grein fyrir í ritinu Leiðbeiningar um gerð bæja- og húsakannana, útgefnu af Húsafriðunarnefnd ríkisins 1996. Þar er höfð til hliðsjónar dönsk SAVE-aðferð, þar sem lagt er mat á fjóra þætti; byggingarlist, menningarsögulegt gildi, umhverfisgildi og upprunalega gerð.

Varðveislugildi húsa byggist síðan á innbyrðis mati á vægi hvers þáttar og vega þar þyngst gildi byggingarlistar, menningarsögu og umhverfis. Einnig er stuðst við Húsverndarskrá Reykjavíkur, sem gefin var út sem þemahefti með Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996 – 2016 (Húsvernd í Reykjavík, svæðið innan Snorrabrautar/ Hringbrautar). Þar sem húsverndarskráin er ekki að öllu leyti byggð á rannsóknum heldur á fyrirliggjandi gögnum og úttekt byggðarinnar á staðnum, getur verið nauðsynlegt að gera breytingar eftir nákvæmari húsakönnun.


Skrár

Skrá Stærð Skráartegund Skoða
skyrsla_108.pdf 6.186Mb PDF Skoða/Opna

Þetta verk birtist í eftirfarandi flokki:

Skoða fulla færslu

Leita


Fletta