Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11822
Þessi ritgerð fjallar um upphafsstafi og notkun þeirra út frá sögulegu samhengi sem og notkun þeirra í nútíma samfélagi. Sögulegar flokkanir og gerðir þeirra eru skoðaðar og einnig tæknilegar uppsetningar þeirra í textum. Þróun þeirra verður skoðuð, allt frá fornum handritum, til dagsins í dag og skoðað verður hver áhrif tækniþróunar og ólíkra aðferða hafa verið á hönnun og notkun upphafsstafa. Sérstaklega skoða ég líka upphafsstafina í samhengi við Ísland, bæði á tímum handritanna og svo eftir að prentun hófst á landinu. Íslenska handritið Flateyjarsaga er ítarlega skoðað og þar greint upphafstafi og það hlutverk sem þeir spila í lestrarupplifuninni. Einnig lít ég örlítið á Guðbrandsbiblíuna til að sjá þær breytingar og þróanir sem prentunin hafði á bókaútgáfu á Íslandi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerd.pdf | 10.31 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |