Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12959
Ábyrgð forstjóra liggur fyrst og fremst í að framkvæma stefnumarkandi áætlanir stjórnar skipulagsheildar og að annast daglegan rekstur svo félagið geti staðið við fjárskuldbindingar sínar, skilað eigendum sínum arði til lengri tíma og uppfyllt samfélagslegar skyldur. Sérstakar áskoranir geta fylgt rekstri stórra opinberra fyrirtækja. Slík fyrirtæki starfa oft undir sérstökum lagaskilyrðum, stefnumótun markast af stjórnmálum á hverjum tíma og taka þarf ríkt tillit til ólíkra hagsmuna við ákvarðanatöku. Um sumarið 2010 var Orkuveita Reykjavíkur í þeirri stöðu að mikil óvissa var um hvort fyrirtækið gæti staðið við skuldbindingar sínar og stóð á barmi greiðsluþrots. Ástandið kallaði á vandaða greiningu, skjóta ákvarðanatöku og eftirfylgni undir krefjandi kringumstæðum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Helstirnið_-_Daði_Sigurjónsson_0904793779.pdf | 1.1 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |