Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14105
Með þessari ritgerð er leitast við að varpa ljósi á þau skilyrði sem aðilar verða að uppfylla til þess að geta talist aðilar stjórnsýslumáls. Er þetta einkum mikilvægt þar sem flest ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993 veita aðeins aðila máls þau
réttindi sem lögin kveða á um. Hvergi í stjórnsýslulögunum né í frumvarpi því er varð að þeim lögum er að finna heildstæða skilgreiningu á hugtakinu aðili stjórnsýslumáls. Þá virðist heldur ekki vera að finna í dómum eða álitum umboðsmanns Alþingis tæmandi skilgreiningu á hugtakinu. Fjallað verður um þá
hagsmuni sem aðilar eiga að gæta til þess að uppfylla skilyrðið og talist aðilar stjórnsýslumáls. Þá verður fjallað um helstu réttindi sem aðilum stjórnsýslumáls eru fengin með ákvæðum stjórnsýslulaga. Mikilvægt er að skýrt sé hvenær aðilar
teljast fullnægja áðurnefndum skilyrðum og hvenær ekki. Þá er mikilvægt að stjórnvöld gæti jafnræðis og samræmis í mati á því hvenær aðilar teljast aðilar stjórnsýslumáls.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Adild_stjornsyslumals_BrynjolfurMagnusson.pdf | 239.51 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |