Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/24131
Frá örófi alda hefur maðurinn haft tilheigingu til þess að skilja eftir sig ummerki á náttúrunni, allt frá hellamálverkum fyrstu manna til veggjakrots nútímans. Ummerkin segja einfaldlega „hér var ég”. Um þetta snýst sum listsköpun dagsins í dag. Ef ekkert er gert í hlýnun jarðar og ekki stemmt stigu við loftlagsbreytingum sem ágerast óðum, þá verður ekkert „hér” eftir. Það er áhugavert að skoða listsköpun sem snýr að tengslum á milli manns og náttúru og hvernig þau hafa mótast í gegnum tíðina. Hnattræn hlýnun er vissulega hluti af sambandinu og vert er að spyrja hvort listsköpun geti sýnt fram á alvarleika og afleiðingar loftslagsbreytinga á áhrifaríkan hátt og mögulega spornað gegn þeim.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Hið nýja háleita - listsköpun á tímum loftlagsbreytinga.pdf | 6.6 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Yfirlýsing_EmmaBjörk.pdf | 314.88 kB | Lokaður | Yfirlýsing |