Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/30376
Aukinn fjöldi ferðamanna til landsins hefur mikil áhrif á margar greinar innan ferðaþjónustunnar ásamt því að hafa áhrif á efnahaginn í heild. Þessi fjöldi ferðamanna hefur ýtt undir nýsköpun í greininni og hafa síðastliðinn ár komið fram á sjónarsviðið mikill fjöldi húsbílaleiga sem býður upp á öðruvísi ferðamáta um landið. Þessi ritgerð fjallar um húsbílaleigur á Íslandi, þróun þeirra og markaðinn í heild. Fyrri hluti ritgerðarinnar snýr að fræðilegri umfjöllun um markaðinn í heild sinni ásamt því að lýsingum á greiningartólum verður gerð góð skil. Unnar voru rannsóknir með eigindlegri og megindlegri rannsóknaraðferð sem framkvæmdar voru með viðtali annars vegar og hinsvegar í formispurningakönnunarsem lögð var fyrir Íslendinga um viðhorf þeirra til ferðaþjónustu á Íslandi, erlenda ferðamenn sem heimsækja landið og húsbíla og húsbílaleiga sem starfa hér á landi. Lögð var fram rannsóknarspurningin: ,,Hvert er viðhorf Íslendinga gagnvart húsbílaleigum á Íslandi í samanburði við ferðaþjónustu og erlenda ferðamenn?” Síðari hluti ritgerðarinnar fjallar um niðurstöður rannsóknarinnar og sýndi rannsóknin ásamt eiginlegum viðtölum fram á það að viðhorf gagnvart húsbílaleigum á Íslandi er frekar hlutlaust, en hefur þó sínar neikvæðu hliðar. Rauði þráðurinn í gegnum rannsóknina er sá að almennt er neikvætt viðhorf gagnvart erlendum ferðamönnum og ferðaþjónustu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Friðrik Sigurjónsson - 1306902039.pdf | 1.62 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Samþykkt skemma.pdf | 30.22 kB | Lokaður | Yfirlýsing |