Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/36696
Þetta verkefni, sem samanstendur af greinargerð og verkefnahefti, mun vonandi verða til að endurvekja áhuga á list Kjarvals hjá nýrri kynslóð grunnskólanemenda. Kjarval er einn af ástsælustu listamönnum okkar og verða nokkur verk hans nýtt sem kveikjur að listkennslu nemenda.
Í greinargerðinni er gerð grein fyrir fræðilegum þætti verkefnisins og fjallað um kenningar nokkurra kennslufræðinga. Reifaðar eru tengingar Aðalnámskrár grunnskóla (2013) við verkefnið, það eru sjónlistir, hæfniviðmið og samþætting. Síðan er í sérstökum kafla fjallað um Kjarval. Að lokum er gerð grein fyrir námsefninu. Verkefnaheftið samanstendur af nokkrum vel völdum verkum Kjarvals og sýnt er hvernig nýta má þau sem kveikjur í kennslu myndlistar. Vonast höfundur þessa verkefnis til að myndlistarkennarar sem og aðrir kennarar geti gripið í verkefnaheftið og nýtt sér það í kennslu. Einnig væri ánægjulegt ef verkefnið yndi upp á sig og fleiri listamenn yrðu teknir markvisst fyrir í framtíðinni.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Elísa Einarsdóttir. B.Ed. greinargerð.pdf | 436.04 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Elísa Einarsdóttir, B.Ed. verkefnahefti.pdf | 1.81 MB | Opinn | Verkefnahefti | Skoða/Opna | |
yfirlísing B.Ed. Elísa Einars.pdf | 674.71 kB | Lokaður | Yfirlýsing |