is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn í Reykjavík > Samfélagssvið / School of Social Sciences > ML Lagadeild / Department of Law >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9324

Titill: 
  • Innborgun hlutafjár og greiðsla arðs í hlutafélögum með tilliti til verndar kröfuhafa
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Umfjöllunarefni þessar ritgerðar er reglur um innborganir hlutafjár og útgreiðslu arðs í hlutafélögum með sérstakri áherslu á vernd kröfuhafa. Markmið reglnanna er að tryggja að hlutafé skili sér á öruggann hátt inn í félög og jafnframt að búa svo um hnútana að því verði ekki aftur komið í hendur hlutahafa nema að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
    Líflegar umræður hafa átt sér stað í fræðasamfélaginu um ágæti þessara reglna og hefur því verið haldið fram að þær séu ýmist of víðtækar, ekki nægilega skilvirkar, kostnaðarsamar og úreldar. Af þessu hefur myndast fremur víðtæk skoðun að endurskoða þurfi reglurnar og er sú vinna að einhverju leiti hafin.
    Ritgerðinni má skipta í þrjá þætti, þ.e. lágmarkshlutafé, hækkun hlutafjár og arðgreiðslur hlutafélaga til hlutahafa. Tilgangur ritgerðarinnar er í fyrsta lagi að gera grein fyrir gildandi lagareglum, í öðru lagi að meta vernd kröfuhafa með hliðsjón af reglunum og í þriðja lagi að gera grein fyrir mögulegum lausnum í þeim tilvikum þar sem tilgangur reglnanna um vernd kröfuhafa nær ekki fram að ganga.
    Helstu niðurstöður eru að reglurnar um lágmarkshlutafé ná ekki tilgangi sínum um að tryggja ákveðna lágmarks eign félaga til verndar kröfuhöfum heldur virka þær frekar sem vörn gegn misnotkun á hlutafélagaforminu. Vernd kröfuhafa vegna takmarkana á arðgreiðslum er ábótavant að því leyti að þær taka ekki tillit til gjaldfærni félaga eftir úthlutun arðs. Reglur um hækkun hlutafjár vernda kröfuhafa sér í lagi ef opinber skráning á hækkun hlutafjárins hefur farið fram.

Samþykkt: 
  • 21.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9324


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Gudmar_ritgerð_lokaSH pdf.pdf728.76 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna