#

Úttekt á aflífun í sauðfjársláturhúsum haustið 2008

Skoða fulla færslu

Titill: Úttekt á aflífun í sauðfjársláturhúsum haustið 2008Úttekt á aflífun í sauðfjársláturhúsum haustið 2008
Höfundur: Valur Norðri Gunnlaugsson 1973 ; Óli Þór Hilmarsson 1957 ; Ásbjörn Jónsson 1960 ; Guðjón Þorkelsson 1953
URI: http://hdl.handle.net/10802/1444
Útgefandi: Matís
Útgáfa: 10.02.2009
Ritröð: Skýrsla Matís ; 05-09
Efnisorð: Lambakjöt; Aflífun; Kæling; Sýrustig; Meyrni
ISSN: 1670-7192
Tungumál: Íslenska
Útdráttur: Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda ályktaði í apríl 2008 um að gerð
verði ítarleg úttekt á meðferð lambakjöts við slátrun, þá sérstaklega við
aflífun og kælingu. Í greinargerð með ályktuninni sagði: „Fundurinn telur
nauðsynlegt að könnuð verði hugsanleg áhrif þessara tveggja þátta á gæði
kjötsins. Þegar skepnan er aflífuð með rafmagni er hætt við að skrokkar
nái ekki að blóðrenna nægilega og eins er hætt við kæliherpingu með of
snöggri kælingu eða frystingu. Matís ohf. gerði úttekt á ofangreindum
þáttum haustið 2008 þar sem aflífun og kæliferlar í 6 sláturhúsum voru
kannaðir, þar af var eitt hús heimsótt tvisvar. Fylgst með aflífun á 100
skrokkum í hverju húsi til að sjá verklag og taka út aðstöðu. Sýrustig og
hitastig skrokka var mælt reglulega auk þess sem hitastig var mælt í
kjötsölum sláturhúsanna. Skrokkar sem teknir voru í þessa rannsókn
fylgdu skokkum í gegnum hefðbundið verkunarferli í hverju sláturhúsi
fyrir sig en fyrir frystingu var hryggur fjarlægður og frystur sér.
Hryggvöðvar voru svo notaðir í áferðarmælinga til að sjá mismunandi
verlagsferla á milli sláturhúsa á meyrni kjötsins.
Niðurstöður sýna að deyðingaraðferð hefur áhrif á dauðastirðnunarferlið.
Það var komið mun lengra í skrokkum lamba í húsum sem nota „hausbak“
aðferðina en hjá húsum sem voru með hausaklemmu. Kælitími er
greinilega of stuttur í sumum húsum. Þannig var sýrustig við frystingu
hæst þar sem hann var stystur og vel yfir 6,0 í húsinu þar sem hann var
einungis 4 tímar. Seigja kjöts var langminnst í hryggvöðva skrokka úr
sláturhúsi þar sem notast var við haus-bak aflífunaraðferð, raförvun var
notuð og mikil og löng kæling tryggði að kjötið var nálgast fullmeyrnað.


Skrár

Skrá Stærð Skráartegund Skoða
Skyrsla__05-09.pdf 1.235Mb PDF Skoða/Opna

Þetta verk birtist í eftirfarandi flokki:

Skoða fulla færslu

Leita


Fletta