#

Húsakönnun : Kringlan - Listabraut - Kringlumýrarbraut - Miklabraut

Skoða fulla færslu

Titill: Húsakönnun : Kringlan - Listabraut - Kringlumýrarbraut - MiklabrautHúsakönnun : Kringlan - Listabraut - Kringlumýrarbraut - Miklabraut
Höfundur: Drífa Kristín Þrastardóttir 1976 ; Guðný Gerður Gunnarsdóttir 1953 ; Skipulagsfulltrúinn í Reykjavík
URI: http://hdl.handle.net/10802/4888
Útgefandi: Árbæjarsafn
Útgáfa: 2006
Ritröð: Minjasafn Reykjavíkur., Skýrslur Minjasafns Reykjavíkur - Árbæjarsafns ; nr. 133Skýrslur Árbæjarsafns ; nr. 133
Efnisorð: Húsfriðun; Húsavernd; Byggingar; Borgarskipulag; Reykjavík
Tungumál: Íslenska
Tengd vefsíðuslóð: http://www.minjasafnreykjavikur.is/PortalData/12/Resources/skjol/skyrslur/skyrsla_133.pdf
Tegund: Skýrsla
Gegnir ID: 991003669049706886
Athugasemdir: Unnið að beiðni Skipulagsfulltrúa Reykjavíkur vegna deiliskipulagsvinnuMyndefni: myndir, uppdr.Hér fer á eftir könnun byggðar á staðgreinireitum 1.721.0 og 1.723.0 í Reykjavík, en svæðið afmarkast af Kringlunni, Listabraut, Kringlumýrarbraut og Miklubraut. Húsakönnunin er unnin að beiðni Skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur í samræmi við skipulagslög vegna gerðar deiliskipulags á svæðinu. Þessi reitur er utan þess svæðis sem varðveisluskrá Reykjavíkur nær til, en það er svæðið innan Hringbrautar / Snorrabrautar. Ekki er um að ræða tæmandi sögulega úttekt á viðkomandi svæði, en þó er skoðað hvaða hús hafa verið byggð á svæðinu í gegnum árin og þau metin sem enn standa. Sú rannsókn er nauðsynleg til að átta sig á samhengi byggðarinnar og þróun svæðisins.

Við mat á varðveislugildi húsa hefur verið beitt svokallaðri SAVE-aðferð (Survey of Architectural Value in the Environment) sem gerð er grein fyrir í ritinu Leiðbeiningar um gerð bæja- og húsakannana, útgefnu af Húsafriðunarnefnd ríkisins 1996. Þar er höfð til hliðsjónar dönsk SAVE-aðferð, þar sem lagt er mat á fjóra þætti: Listrænt gildi, menningarsögulegt gildi, umhverfisgildi og upprunalega gerð. Varðveislugildi húsa byggist síðan á innbyrðis mati á vægi hvers þáttar og vega þar þyngst gildi byggingarlistar, menningarsögu og umhverfis. Einnig er stuðst við Húsverndarskrá Reykjavíkur, Húsvernd í Reykjavík, svæðið innan Hringbrautar / Snorrabrautar, sem gefin var út sem þemahefti með Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996–2016. Þar sem húsverndarskráin er ekki að öllu leyti byggð á rannsóknum heldur á fyrirliggjandi gögnum og úttekt byggðarinnar á staðnum, getur verið nauðsynlegt að gera breytingar eftir nákvæmari húsakönnun.


Skrár

Skrá Stærð Skráartegund Skoða
skyrsla_133.pdf 2.238Mb PDF Skoða/Opna

Þetta verk birtist í eftirfarandi flokki:

Skoða fulla færslu

Leita


Fletta